Thursday, June 22, 2006

Sumarfrí

Jamm ég í sumarfríi og finn mér bara nákvæmlega ekkert að gera!! En svona er þetta stundum og á þessu verður breyting þegar Ívar fer líka í frí þann 5. júlí :) Við ætlum svo að skella okkur í sumarbústað í viku á Flúðum og þaðan förum við líklegast norður í Hrísey og svo vestur á Ísafjörð í heimsókn til Lindu systir :)
Þetta verður örugglega fínt frí :) hef ekki trú á öðru.

En það er aðeins meira en vika síðan ég kom heim og er rétt að jafna mig núna. Þvílíkt sem ég er búin að sofa!! Andiltið einnig búið að jafna sig, var alveg rosaleg bólgin og þrútin eitthvað eftir þessa ferð. En það er kannski ekki skrýtið miðað við hvað við gerðum rosalega mikið og auðvitað fer þessi hiti misvel í fólk.

En jæja Ívar er að koma með bílinn og best að skunda eitthvað út. Er annars að fara í brúðkaup um helgina hjá Hrund og Nonna :):):) Við það tilefni fór ég og keypti mér alveg svakalega flottan kjól :) ekkert smá ánægð með þetta.

Þangað til næst hafið það gott :) Og ef ykkur leiðist endilega bjallið í mig.... hef ekkert rosalega mikið að gera svona á virkum dögum :) hehe

Thursday, June 15, 2006

Komin heim :)

Jæja er komin heim :) úr aldeilis frábærri ferð!! með frábærum ferðafélögum :) Ég ætla að reyna að skrifa smá ferðasögu hér :)

Þriðjudagur:
Flugið út var aldeilis fínt og var ég pínku ponsu hrædd í flugtakinu en svo var þetta bara fínt :) Við lentum í Friedrichshafen um níu á þriðjudagskvöldinu og ég og Hrabba biðum eftir töskunum á meðan hinar skunduðu til þess að sækja bílinn. Þegar við komum út sáum við líka þennan stóra bíl Benz VITO, níu manna silfur græja. Svo var bara lagt í hann. Við fórum með ferju frá Neerburg til Konstanz og keyrum svo í gegnum Sviss til Frakklands. Við vorum komnar um hálf fimm um nóttina. Svo var bara gengið frá og búið um og farið að sofa.

Bíllinn okkar :)


Miðvikudagur:
Vaknað um tíu og skundað í Super U (verslun) Þar var keypt fullt að borða, helst brauð, osta, grænmeti, bjór og rauðvín :) Dagurinn fór helst í að ná áttum og fórum við í Gönguferð upp á Mount Bernand (þorpið sem við vorum í hélt Bernand :)) Veðrið var frábært, um 23 stiga hiti og heiðskýrt.

Við að borða úti :)

Gönguferðin

Fimmtudagur:
Fórum til Thonon á markað um níu. Ferðin þangað tók um 35 mínútur en aðeins lengri tíma tók að finna bílastæði og lendum við í ýmsu við það híhíhí. Keypti mér sólgleraugu sem eyðilögðumst fimm mínútum seinna, kjól og hringa handa mömmu. Fórum svo í "Blómabæinn" og skoðuðum eld eld gömul hús og fallegan bæ :) Veðrið var æðislegt um 26 stiga hiti, heiðskýrt og logn. Kvöldið var tekið rólega og spila Trivial :)

Ég í Thonon

Föstudagur:Ákveðið var að vera heima í Bernand þennan dag. Mandý, Fanney og Hrabba tóku sig til og fóru í garðyrkju á meðan Theó og Kolla þrifu bílinn og gerðu aðeins við híhíhí.... ég já ég tók myndir hehehe. Fórum aðeins á rúntinn í Super U og fórum út að borða á alveg hreint frábærum veitingarstað :) Fengum fullt af hráu kjöti sem við elduðum sjálfar á steikarpönnu og ost sem bráðnaði.... get ekki beint lýst þessu en maturinn var frábær í alla staði :) Veðrið þennan dag var frábært eins og hina, um 27 stiga hiti, heiðskýrt og logn.

Theó og osturinn mikli.

Laugardagur:
Vaknað snemma og keyrt til Evian. Farið þaðan með ferju til Lausanne í Sviss. Þangað var farið í verslunarferð og voru nokkur skópör keypt og ýmislegt í HM.... Dagurinn var æðislegur og rosalega mikið fallegt séð :) Veðrið var eins og á föstudeginum. Kvöldið var tekið rólega, skoðað myndir úr ferðinni, hlegið og drukkið smá rautt :D:D

Sunnudagur:
Farið var í "Geitadalinn" sem er held ég í 1600 metra hæð. Þar fóru sumir í gönguferð lengst upp, aðrir aðeins styttra og enn aðrir aaaaðððeeiinnss styttra :D. Þar sáum við snjó!!
Þaðan var svo farið lengst niður í jörðina að skoða gljúfur sem á hefur brotið sig í gegnum. Alveg svakaleg sjón og frábært eins og allt á þessum degi :) Staðurinn heitir á íslensku munnur djöflabrúarinnar. Veðrið svipað og hefur verið ef ekki heitara.

Theó og Mandý í gönguferð um "Geitardalinn"

Mánudagur (þessi rólegi...):
Já síðasti dagurinn í húsinu. Ákveðið að taka daginn rólega þar sem við áttum eftir að þrífa húsið og pakka niður. Þó var nú ákveðið að fara í smá gönguferð. Mandý og Hrabba fóru niður í Bernex og við hinar ákváðum að ganga að Thollon... bara smá ganga... Fórum um hálf tvö. Vegna hversu stutt við ætluðum var ekkert vatn eða símar með í för.. Eftir að hafa labbað í þó nokkurn tíma sáum við niður í bæinn. Vorum við orðnar vel þyrstar og því var ákveðið að fara niður í bæinn. Þar voru allt lokað en eftir smá göngu um bæinn fundum við supermarkað og var þar keypt vatn og súkkulaði. Farið var svo aðra leið heim og var hún þokkalega erfið bara upp upp og aðeins meira upp!! Við vorum nú farnar að hafa smá áhyggjur af því að stelpurnar sem eftir urðu heima væru farnar að undrast um okkar en því miður var ekki hægt að hringja… maður lærir af reynslunni híhí.
Þegar við komum loks heim um sex eftir þessa líka stuttu göngu var drifið sig í sturtu og skundað út að borða í Evian þar sem við fengum frábæran mat og þjónustu. Veðrið var alveg svakalega gott, líklega um 29 stiga hiti, heiðskýrt og logn!!

Þriðjudagur:
Vaknað snemma og gengið frá öllu. Lögðum af stað kl. hálf níu. Fyrst var stoppað og skoðað rosalegan kastala í Sviss. Eyddum smá tíma þar og nutum þess að ímynda okkur lífið á þrettándu öld . Haldið var svo áfram til Konstanz í Þýskalandi og tekin þar ferja til Neerburg. Stoppuðum þar og skoðuðum þennan fallega bæ og nutum veðurblíðunnar. Um 30 stiga hiti, heiðskýrt og logn!! Ferðinni var svo haldið áfram til Friedrickshafen og borðað á kínverskum stað. Rosalega mikill og góður matur og þar drakk ég örugglega besta bjór sem ég hef smakkað. Fórum svo í loftið rétt fyrir tíu á þýskum tíma og lentum rétt fyrir tólf á íslensku s.s. fjögurra tíma flug. Fékk far með móðir Kollu heim og var komin um hálf tvö vel þreytt.
Flugið var hreint út sagt ömurlegt og grét ég ekkert smá mikið Takk stelpur fyrir hjálpina í fluginu og frábært ferðalag


Í flugvélinni :)
Getið skoðað myndir af ferðinni hér til hliðar  Tekið var um 800 myndir í ferðinni svo þetta er bara brotabrotabort af því 

Tuesday, June 06, 2006

Nú líður heldur betur að stundinni!!

Þá hef ég lokið við að pakka því sem ég ætla að taka með mér. Ég er örugglega að pakka of miklu og er að gleyma því sem ég þarf að vera með ég ég þekki mig rétt híhí hí :) annars eigum við alveg örugglega eftir að blogga eitthvað á meðan við erum úti á kvenfélagssíðunni okkur, endilega fylgist með :)
Annars ætla ég að fara og fá mér eitthvað að borða, ca klukkutími í að ég fari og sæki stelpurnar!!

Annars hafið það svakalega gott þangað til ég kem heim eftir viku... og jú endilega eftir það líka híhí. Bless bless

Sunday, June 04, 2006

Eftir ca. 36 tíma

Þá fer ég í loftið :)Úff hvað maður er skelfilega upptekinn af þessu híhíhí!! En svona er þetta, bara hryllilega spennandi :)
Við Ívar vorum að koma heim eftir bíóferð á DaVinci Code. Hún var bara nokkuð fín, ég bjóst svo sem ekki við neinu sérstöku. En þetta var fínasta afþreying :) Annars byrjaði kvöldið á því að ég fór til Mandý og þar var Theó einnig. Við skoðuðum kort og Theó kom með ýmsar hugmyndir um hvað við gætum gert þarna úti!! Það er sko nóg hægt að gera og það er alveg á hreinu að við munum ekki komast yfir það allt. En það er þá bara frábær afsökun fyrir því að fara síðar aftur :)
Jæja, ætli ég bloggi ekki á þriðjudagsmorgunin þegar ég sit hér og bíð eftir að komast á völlinn. Hafið það gott people :)

Friday, June 02, 2006

4 dagar

Jamm það eru víst fjórir dagar þangað til ég fer út ef ég kann eitthvað að telja :) Var að koma heim úr vinnunni s.s. síðasta vinnudeginum er lokið!!! Úfffff hvað þetta er óendalega skrýtið..... og ég hreinlega veit ekkert hvað ég á af mér að gera híhíhí... en ég hlýt að finna eitthvað.
Annars langaði mig bara að láta ykkur vita af því að ég er komin í SUMARFRÍ VÍVÍ :)

Heyrumst :D

Thursday, June 01, 2006

5 dagar til Frakklands

Jamm og jæja :) Nú eru aðeins fimm dagar þangað til ég og mínar yndislegu vinkonur fljúgum til Friedrichshafen þar sem Kolla mun taka á móti okkur. Keyrt verður svo í gegnum Sviss og til Frakklands. Ja hérna hvað maður er orðinn hryllilega spenntur víví :)

Annars var ég að átta mig á því í dag að nú væri ég búin að ljúka mínu fyrsta kennsluári. Mjög svo furðulega tilfinning þar sem mér finnst ég varla vera útskrifuð. Á morgun verða svo skólaslit og mun ég hitta nemendur og foreldra í tíu mínútur til að þakka þeim fyrir veturinn og láta krakkana fá einkunnir. Dagurinn í dag var samt rosalega erfiður úff :( Hann tók gríðalega mikið á. Ég kallaði krakkana eitt og eitt inn til mín og þakkaði þeim fyrir veturinn og fékk að taka utan um þau. Ég sagði nákvæmlega satt þegar ég sagði þeim að þau hefðu kennt mér alveg fullt og ég virkilega hlakka til að halda áfram að læra af þeim. Þetta er æðislegur hópur!! Þótt svo að maður sé stundum þreyttur og fúll við þau elskar maður þau út af lífinu og vill þeim allt hið besta.
En já, ég er víst orðin kennari!! Manni finnst maður nú varla vera það fyrsta árið en núna líður manni þannig og leyfir sér að vera pínu stoltur!! Það eru nú ekki allir kennarar sem þrauka fyrsta árið svo *klapp**klapp* fyrir mér hehehehe :)

Njótið!! Bless í bili!!