Thursday, June 22, 2006

Sumarfrí

Jamm ég í sumarfríi og finn mér bara nákvæmlega ekkert að gera!! En svona er þetta stundum og á þessu verður breyting þegar Ívar fer líka í frí þann 5. júlí :) Við ætlum svo að skella okkur í sumarbústað í viku á Flúðum og þaðan förum við líklegast norður í Hrísey og svo vestur á Ísafjörð í heimsókn til Lindu systir :)
Þetta verður örugglega fínt frí :) hef ekki trú á öðru.

En það er aðeins meira en vika síðan ég kom heim og er rétt að jafna mig núna. Þvílíkt sem ég er búin að sofa!! Andiltið einnig búið að jafna sig, var alveg rosaleg bólgin og þrútin eitthvað eftir þessa ferð. En það er kannski ekki skrýtið miðað við hvað við gerðum rosalega mikið og auðvitað fer þessi hiti misvel í fólk.

En jæja Ívar er að koma með bílinn og best að skunda eitthvað út. Er annars að fara í brúðkaup um helgina hjá Hrund og Nonna :):):) Við það tilefni fór ég og keypti mér alveg svakalega flottan kjól :) ekkert smá ánægð með þetta.

Þangað til næst hafið það gott :) Og ef ykkur leiðist endilega bjallið í mig.... hef ekkert rosalega mikið að gera svona á virkum dögum :) hehe

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Já það stefnir greinilega í fínt sumarfrí hjá ykkur :) Já og til lukku með fína kjólinn þinn :)

3:24 AM  

Post a Comment

<< Home