Thursday, May 04, 2006

Reyklaus

Já haldið þið að stelpan sé ekki að berjast við fíknina :) Fékk allt í einu þá flugu í höfuðið að hætta að reykja!! Fór sem sagt í afmæli til Kötu á laugardagskvöldið og þegar ég vaknaði á sunnudeginum vissi ég að nú væri ég hætt :) þannig að ég hef ekki reykt síðan :) svaka sátt skvísa híhíhí!! Ennnnnn nú er aðeins fimmti dagurinn að líða svo ég veit að ég er alls ekki búin að sigra þetta og á morgun er ég að fara í grillpartý með vinnunni og vona innilega að fíknin mun ekki fara með mig ef ég fæ mér í glas.

Annars er bara allt í gúttí hér og þið megið endilega peppa mig upp í þessari baráttu minni heheheh :):)

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Vá flott hjá þér skvís, gangi þér vel, sjáumst svo reyklausar í lok maí ;)

12:38 PM  
Anonymous Anonymous said...

Rosalega er ég ánægð með þig, þetta getur verið erfitt en þú ert svo æðisleg að þú átt eftir að standa þig vel og komast yfir þetta. Gangi þér vel skotta.
knús...Berglind.

2:32 PM  

Post a Comment

<< Home