Wednesday, February 22, 2006

22. febrúar :)

Já já þá er skvísan orðin 26. ára gömul. Ég er nú rólegri yfir þessum aldri heldur en ég varð í fyrra hahaha fékk alveg hita og alles þá :)
Dagurinn í dag er búinn að vera mjög nice þó svo að hann hafi nú ekki byrjað sem best en minn heittelskaði gleymdi honum hehehe en hann var nú fljótur að átta sig og sendi mér sms og e-mail í vinnuna :) þannig að honum var fyrirgefið með því sama.Nemendur mínir eru alveg hreint yndislegir hehe, gáfu mér blóm og nammi. Algjörar dúllur!!

Svo erum við bara á fullu að pakka. Þetta er nú allt að verða komið ofaní töskur eða kassa þannig að nú er eiginlega bara eftir að flytja. Förum með dót í geymslu á föstudag, annað á haugana á laugardag og svo bara við, kisi, rúmið og fötin okkar á sunnudeginum. Úffff hvað ég verð ÞREYTT á mánudeginum!! Erum að fara á árshátíð á föstudagskvöldinu og út að borða (líklega) með Línu og Ragga en Lína er að útskrifast um daginn :) Þannig að það verður NÓG að gera um helgina og kannski mun litla frænka líta dagsins ljós vívíví :D

Annars eigið góðan dag og hafið það sem allra allra best :)

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Til lukku með daginn snúllan mín;)
Eigðu góðan dag í dag og alla daga!
Knús og kremjur Tinna.

1:18 PM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með afmælið skvís hehe ég er bara 25 ára hehehe naní naní búbú

5:15 AM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju med daginn skvisa, vonandi attiru godan afmaelisdag :)

5:58 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hva er mín hætt bara eða ?

8:53 AM  

Post a Comment

<< Home