Saturday, May 27, 2006

halló :)

Halló halló þið örfáu sem nennið að athuga með blogg hér inni :) Ég er búin að vera óendanlega löt við að blogga en það hefur verið mikið að gera í vinnunni :)

Langaði eiginlega bara að láta vita að ég er að fara til Frakklands eftir tíu daga híhí. Ég s.s. flýg út með Théo, Mandý, Hröbbu og Fanney til Friedrichshafen þar sem við munum hitta hana Kollu og keyra upp í frönsku alpana þar sem foreldrar einnar eiga hús. Þar ætlum við svo að vera í viku!!! Omg hvað þetta verður frábært!! Það er sko hálft ár síðan við pöntuðum ferðina þannig að það er eiginlega fáranlegt hvað er orðið allt í einu stutt í þetta híhíhí....

Já það er sko mikil tilhlökkun í gangi en auðvitað líka smá hræðsla... ég er nú ekkert lítið flughrædd :S en ég held að það sé bara best að drekka smá áður en farið verður af stað híhíhí..

Já mig hlakkar til að komast í sumarfrí!! það verður alveg rosalega fínt :) Við Ívar ætlum í sumarbústað í viku á Flúðum og verður það örugglega alveg yndislegt. Lítið hefur annað verið planað nema að ég ætla að heimsækja Theó norður á Húsavík og kannski að við brunum Sprengisandinn og kíkjum á Hröbbu í Landmannalaugum og Fanney í Álftavatni :) Ég allavega ætla að fara laugarveginn þetta sumarið!! það er sko ekki spurning :)

En jæja, hafið það sem allra best og EKKI GLEYMA AÐ KJÓSA!!
VINSTRI VINSTRI VINSTRI ER GOTT GOTT GOTT híhíhí
GRÆNT GRÆNT GRÆNT ER GRASIÐ ÚT Í HAGA

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

LOKSINS LOKSINS nýtt blogg hihi :D Víhí hvað þetta verður GEGGJAÐ hjá okkur! Víhí! Já við verðum að berjast við allar hræðslur ;) Drekkum bara nóg af rauðvína allan daginn alla daga ;)

5:08 AM  
Anonymous Anonymous said...

Umm frakkland hljómar vel hafðu það gott og góða ferð skvís
Gugga

8:52 AM  
Anonymous Anonymous said...

OOOOOOO það verður svo gaman hjá ykkur!!!

1:26 PM  

Post a Comment

<< Home