Thursday, October 19, 2006

Hellú!!

Hellú

OMG hvað ég hef verið hiper núna upp á síðkastið!! Er orðin hálf ofvirk held ég bara hehehe sem er nú bara nokkuð gott :) greinilega eitthvað sem er að virka með nýjum lífstíl. Annars pirrar það mig smá að sjá ekki almennilega breytingu á mér eftir allt þetta púl en það er kannski spurning um að vera pínu þolinmóður híhí. Lenti samt í því að togna á kálfa og má því helst ekki hlaupa mikið en annað er í lagi. Tók mér frí frá ræktinni í dag en fer á morgun :)

Annars er flest allt við það sama bara. Erum að fara annaðkvöld til Ragga og Línu að rifja upp Köben ferðina, skoða myndir og drekka kannski öl og Gammel dansk hehehe. En ég ætla samt mjög rólega í þetta þar sem ég er í átaki og vil nú ekki eyðileggja það með drykkju þið skiljið ;)

Mamma og Óskar pabbi fóru til Spánar í dag að fá afhenda íbúðina, ekkert smá gaman hjá þeim. Það er ekkert smá sem ég öfunda þau að komast úr þessum helv.... kulda ohhh.

Jæja í náttfötin og kúr við TV!! Bið að heilsa ykkur í bili :)

Það er kominn linkur fyrir myndir frá Köben :) Enjoy

3 Comments:

Blogger Velkomin í Ruglið!!! said...

Tókst ekki að útbúa link.... vonandi kemur þetta lfjótlega

1:20 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hæ dúllan mín....langaði bara að kasta smá netknúsi á þig;)
Hafðu það gott skvís!

4:04 AM  
Anonymous Anonymous said...

Það er aldeilis að það er kraftur í þér! Alltaf gott að drífa sig í smá átak. Gangi þér vel áfram :)

11:45 AM  

Post a Comment

<< Home