Thursday, March 16, 2006

ARRRRGGG

Ég var búin að skrifa alveg fullt en þetta virkaði ekki :( þannig að þetta datt allt út!!! Bara pirrandi en ég ætla að reyna að skrifa hér eitthvað.
Það er allt gott að frétta af okkur. Við erum flutt til pabba og það gengur mjög vel og er virkilega notalegt að fá tíma til að kynnast honum almennilega :) Ég eignaðist litla frænku á miðvikudag í síðustu viku sem var svo skírð deginum á eftir Þorbjörg Halldóra Gunnarsdóttir og er s.s. alnafna múttu minnar sem er gjörsamlega að springa úr stolti eins og við öll. Hún er algjör perla, yndisleg og falleg :):)
Um síðustu helgi var kattasýning Kynjakatta og fór ég með hann Leó minn. Hann var í öðru sæti báða dagana í flokki húskatta og auðvitað varð mamman svakalega stolt af stráknum sínum.... að mínu mati hefði hann átt að rúlla þessu upp en hann gerir það bara á haustsýningunni hahaha. En já ég ætla sko aftur!! Þetta var alveg svakalega gaman og elti ég Hrund á röndunum og spurði hana í þaula.... veit þó ekki hvort hún hafi skemmt sér jafn vel og ég hehehe.
Um helgin erum við að fara á Bjarteyjarsand í sumarbústað og ætlum gjörsamlega að liggja í leti alla helgina, fara í heita pottinn, kúra og elda góðan mat :D ohhh hvað mig hlakkar til víví.
Theó bestasta vinkona mín er eitthvað lasin :( langar bara að senda henni rosalega góðar kveðjur og vonandi rífuru þig upp úr þessu snúllan mín!! Annars bið ég bara að heilsa ykkur í bili :) hafið það sem allra allra best people!