Tuesday, December 05, 2006

Hugsi hugs...

Jamm og jæja, hlaut að koma að þessu en ég hélt að það yrði samt ekki alveg á næstu árum en jú!! Jú ég er farin að hugsa hvort ég ætti að finna mér eitthvað annað að gera í staðinn fyrir að kenna! ja maður gæti kannski fengið betur launað einhvers staðar annarsstaðar. Úff já já nú segið þið "hva, þú hlýtur að hafa vitað hvað launin væru léleg þegar þú fórst í Kennó" Svarið við því er NEI, jú ég vissi að það væri ekki gott en aldrei datt mér í hug að það væri svona lélegt, eins fór ég ekki í háskólanám til þess að verða rík heldur til að gera það sem ég hef unun að gera, sem er jú að kenna. En maður vill nú samt geta lifað!!

En æji ég er nú bara að hugsa um þetta, hef alls alls ekki tekið neina ákvörðun. Þetta er mér gríðalega erfitt þar sem ég hef aldrei gert neitt jafn skemmtilegt og gefandi eins og að kenna.

Ég er líka svo ótrúlega pirruð á þessum fasteignamarkaði. Mér finnst alveg ótrúlegt að fá ekki meiri hjálp frá bönkum eða ríkinu til þess að ég geti keypt mér íbúð. Jú ég er auðvitað bara algjör hálviti að flytja svona ung að heiman og fara í heimavistaskóla sem kostaði hrúgu af peningum og þar að leiðandi hafði ég ekki efni á því að spara!! Eins er ég algjör hálviti að geta ekki sparað á meðan ég var í háskólanámi og jú ég er auðvitað algjör hálviti að geta ekki sparað þegar ég er byrjuð að vinna!! Úfff fólk á auðvitað misjafna ævi, sumt fólk er tilbúið að fara að vinna 16. ára og ekki fara í skóla, sumt fólk er einfaldlega sparsamara en annað og þarf til dæmis ekki að borga leigu, námslán eða reka bíl heldur á það rosalega góða foreldra sem gera það bara fyrir mann. Þvílíkur lúxus. En svo eru auðvitað aðrir sem bara geta verið í skóla, borgað leigu og samt sparað!! Ég hefði viljað fara á námskeið með því fólki. En jamm þetta er auðvitað misjafnt, en mér finnst furðulegt að "þeir sem ráða öllu" búast við því að maður labbar úr háskólanum með tvær millur í höndunum til að borga upp í íbúð!! hmmmmm Kannski er ég bara hálviti!!

En jamm og jæja, þetta eru hugleiðingar dagsins :)

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Já, ég er nú nokkuð sammála. Það er td. varla gert ráð fyrir að fólk í háskólanámi búi annars staðar en hjá foreldrunum. Allavega skil ég ekki hvernig ég á að lifa á 55 þúsundum á mánuði (en það er það sem ég fæ til framfærslu frá lín).

12:17 PM  

Post a Comment

<< Home