Thursday, January 11, 2007

Halló heimur :)

Góðan dag! kæra fólk :)

Gleðilega jól og nýtt ár! Takk fyrir það gamla :) Hef ekkert skrifað þar sem ekkert netsamband var í Hrísey og svo er ég ekki lengur með netið heima, í vinnunni er ég nú oftast að vinna og nenni ekki að blogga ;) en ákvað að henda smá inn núna.
Ívar átti afmæli í gær :) Til hamingju með það ástin mín!!
Eins og margir aðrir fékk ég nokkrar frábærar jólagjafir :) það sem stendur hæst er BLEIKI IPODINN sem ég fékk frá Ívari!! Það greinilega virkar að skrifa hér inn! híhí
Já svo ákvað pabbi að gifta sig á nýársdag!! Þar að leiðandi bættist hellingur við fjölskylduna mína :) Ása heitir konan hans pabba og á hún fjögur börn :) Tvær fullorðnar stelpur (önnur á tvær litlar stelpur) og svo á hún tvo litla gaura sem heita Samúel og Aron og eru algjörir snillingar :) Ég er mjög ánægð með þessa viðbót og frábært að sjá hvað pabbi er hamingjusamur.

Annars eru við Ívar enn á fullu í ræktinni. Við erum ekki lengur hjá einkaþjálfara en okkur gengur bara mjög vel að vinna í þessu ein :)
Svo er ég að fara upp á Hrauneyjar á laugardaginn með Theó og líklega ætlar hún Kolla með :) Við ætlum að gista, fara í heita pottinn, búa til snjóhús, borða, sofa og hafa gaman!!

En það væri mjög gaman að sjá hverjir nenna enn að kíkja hér inn :) Heyrumst!!

12 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ég kíki alltaf reglulega og verð alltaf glöð þegar ég sé nýtt blogg;)Gaman að heyra með pabba þinn...til lukku með hann;)
Hafðu það nú gott skvís...knús til þín frá mér;)

2:26 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég kíki alltaf hingað af og til elskan mín :) Til lukku með pabbann þinn! Minn er líka ný giftur... ;)

10:17 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég kíki alltaf reglulega. Ef ég mætti ráða ættiru bara að blogga oftar;o) Flott hjá ykkur að endast í ræktinni, það geta ekki allir (huhumm, þar á meðal ég)
Kv. Hanna

2:12 PM  
Anonymous Anonymous said...

ÉG er að kíkja ;) Hlakka til að hitta þig :D

7:15 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég kíki :)
kv. Kristjana

7:04 AM  
Anonymous Anonymous said...

Kíki alltaf reglulega hjá þér..... þar sem við erum ekki alveg nógu duglegar að hittast:) þyrftum að fara að bæta úr því.

11:22 AM  
Blogger Velkomin í Ruglið!!! said...

Mikið svakalega er ég glöð að sjá hversu margir kíkja hér inn, takk fyrir það!! Ég skal vera duglegri við að blogga :)

12:23 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég kíki alltaf hér inn öðru hvoru í von um nýtt blogg! Þið eruð aldeilis dugleg í ræktinni, frábært hjá ykkur það :) Ég fæ nú alltaf pínu í magann þegar ég sé að þið skvísurnar eruð að fara í Hrauneyjar, langar líka!

1:28 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég kíkji nú annað slagið... Til hamingju með pabba þinn :)

1:15 AM  
Anonymous Anonymous said...

Nýtt blogg
www.gim80.bloggar.is
kv. guðbjörg

6:40 AM  
Anonymous Anonymous said...

TIl hamingju með afmælið :)

1:09 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ath. ný síða www.gim80.bloggar.is :)

2:01 PM  

Post a Comment

<< Home