Tuesday, May 30, 2006

Hrauneyjaskvísurnar


Hluti af hrauneyjaskvísunum :) Fanney, Dagrún, Theó, Mandý og Hrabba.


Nú eru aðeins 7 dagar í sæluna :) og mig farið að hlakka alveg virkilega mikið til. Á þessari mynd hér að ofan má sjá mig, Fanneyju, Kollu og Theó. Þarna erum við í Landmannalaugum!! Alveg svakalega skemmtileg ferð. En þetta er hluti af okkur stelpunnum sem erum á leið uppí frönsku alpana. Ef við komumst upp í Landmannalaugar á sumardekkjum yfir vetratíma þá hljótum við að reddast í ölpunum híhí


Hér er svo mynd af Mandý og Hröbbu sem verða einnig með í för og hefur maður nú lent í ævintýrum einnig með þeim :)
Mandý



Hrabba og Theó



Svo verð ég eiginlega að setja eina mynd hér inn sem mér þykir alveg svakalega vænt um :) Þetta er ég og Theó á Hrauneyjum að búa til snjóhús híhíhí, alveg rosalega skemmtileg ferð!!


Allavega langaði mig bara til að segja hæ og mun ég rita hér meira inn fljótlega :) heyrumst

Saturday, May 27, 2006

halló :)

Halló halló þið örfáu sem nennið að athuga með blogg hér inni :) Ég er búin að vera óendanlega löt við að blogga en það hefur verið mikið að gera í vinnunni :)

Langaði eiginlega bara að láta vita að ég er að fara til Frakklands eftir tíu daga híhí. Ég s.s. flýg út með Théo, Mandý, Hröbbu og Fanney til Friedrichshafen þar sem við munum hitta hana Kollu og keyra upp í frönsku alpana þar sem foreldrar einnar eiga hús. Þar ætlum við svo að vera í viku!!! Omg hvað þetta verður frábært!! Það er sko hálft ár síðan við pöntuðum ferðina þannig að það er eiginlega fáranlegt hvað er orðið allt í einu stutt í þetta híhíhí....

Já það er sko mikil tilhlökkun í gangi en auðvitað líka smá hræðsla... ég er nú ekkert lítið flughrædd :S en ég held að það sé bara best að drekka smá áður en farið verður af stað híhíhí..

Já mig hlakkar til að komast í sumarfrí!! það verður alveg rosalega fínt :) Við Ívar ætlum í sumarbústað í viku á Flúðum og verður það örugglega alveg yndislegt. Lítið hefur annað verið planað nema að ég ætla að heimsækja Theó norður á Húsavík og kannski að við brunum Sprengisandinn og kíkjum á Hröbbu í Landmannalaugum og Fanney í Álftavatni :) Ég allavega ætla að fara laugarveginn þetta sumarið!! það er sko ekki spurning :)

En jæja, hafið það sem allra best og EKKI GLEYMA AÐ KJÓSA!!
VINSTRI VINSTRI VINSTRI ER GOTT GOTT GOTT híhíhí
GRÆNT GRÆNT GRÆNT ER GRASIÐ ÚT Í HAGA

Tuesday, May 09, 2006

Myndir

Vildi bara láta vita að þið getið séð nýjar myndir af Leó og Töru á linknum hér við hliðina :) Hafið það gott í góða veðrinu.

Nú eru aðeins 28 dagar þangað til ég fer til Frakklands vívíví

Thursday, May 04, 2006

Reyklaus

Já haldið þið að stelpan sé ekki að berjast við fíknina :) Fékk allt í einu þá flugu í höfuðið að hætta að reykja!! Fór sem sagt í afmæli til Kötu á laugardagskvöldið og þegar ég vaknaði á sunnudeginum vissi ég að nú væri ég hætt :) þannig að ég hef ekki reykt síðan :) svaka sátt skvísa híhíhí!! Ennnnnn nú er aðeins fimmti dagurinn að líða svo ég veit að ég er alls ekki búin að sigra þetta og á morgun er ég að fara í grillpartý með vinnunni og vona innilega að fíknin mun ekki fara með mig ef ég fæ mér í glas.

Annars er bara allt í gúttí hér og þið megið endilega peppa mig upp í þessari baráttu minni heheheh :):)